Skip to main content

The town council has finally agreed to rectify the situation and cover the costs that were unfairly placed on this woman. This result proves that persistence is necessary when the systems we rely on fail to provide basic fairness. We should remain attentive to ensure the promised compensation reaches her …

January 25, 2016

Réttlæti fyrir gömlu konuna í Garðabæ

Réttlæti fyrir gömlu konuna í Garðabæ

🏆 Won — 1,396 supporters Verified

Final supporters

S
Sigrún G.
A
Anna K.
H
Hrafnhildur M.
B
Birna G.
B
Birna G.
V
Vilhelmina R.
S
Someone
A
Anita R.
V
Vildis O.
L
Linda L.
+1,386 more
KS
Started by Kidda Svarfdal 11 years, 2 months ago

Við ætlum að fara með þessar undirskriftir til Bæjarstjórnar Garðabæjar og krefjast einhverskonar réttlætis í málinu.


Í stuttu máli eru málavextir svona:

1. Gamla konan (85 ára) fer í mál við Garðabæ vegna skemmda sem hús hennar varð fyrir vegna framkvæmda sem bærinn stóð fyrir. (Þess bera að geta að húsið var dæmt ónýtt af tveimur óskildum aðilum)2. Vinnur málið í héraði! (gjörsigrar)3. Málinu áfrýjað til hæstaréttar. Tveimur vikum áður en málið var tekið fyrir hjá hæstarétti fær lögmaður Garðabæjar í bakið!!! og verður því að fresta réttarhöldum í tvær vikur. Í millitíðinni er skipt um dómaratríó.

4. Málið er flutt fyrir Hæstarétti, dómara geta ekki komist að niðurstöðu!! (hvað er það?) ákveðið er að taka málið aftur fyrir. ( sem aðeins hefur gerst tvisvar í réttarsögu landsins)
5. Aftur er skipaður dómur! (5 í þetta skiptið). Í milli tíðinni kemur lögmaður Garðabæjar einni skýrslunni að sem unnin var af vildavinum Garðarbæjar.
6. Málið tekið fyrir, lögmaður Garðabæjar notar þessa skýrslu sem eitt af sínum lykilgögnum í málinu
7. Dómur Fellur Garðabæ í vil. Allt í einu var húsið sagt illa byggt.
Gamla konan er öreigi og þurfti að borga allan málskostnað.

Updates

Reached 1,000 supporters

December 18, 2015

Reached 100 supporters

May 16, 2015

May 15, 2015

Við nálgumst nú hóp sem er nægilega stór til að bæjarstjórnin taki eftir. Það er mikilvægt að við náum þessum áfanga svo málið haldi áfram að vaxa í augum þeirra sem bera ábyrgðina. Vinsamlegast hjálpið til við að koma þessari undirskriftasöfnun á framfæri svo við getum lagt fram kröfuna af fullri þyngd.

267 Comments

T
Torolfur Danielsson
10 years ago Featured

Það á auðvitað að hjálpa konunni. Við þekkjum þetta fyrirbæri, að jarðvegsvinna í Silvurtúninu hefur áhrif á húsgrunna þar. Þetta er á sama hátt í Goðatúni 32.

H
Hakon Gudrodarson
10 years ago Featured

Bæjaryfirvöld ættu að skammast sín í þessu máli. Það er hræðinlegt að þessi góða kona skulu þurfa að eyða tíma og fjármunum í þetta mál á þessum aldri þegar hún ætti að fá að njóta ávaxta erfiðisins og tíma með sínum nánustu! Hvað myndi forseti bæjarsjtórnar gera ef svona væri komið fyirr ömmu hennar?

Þ
Þóra Þórisdóttir
10 years ago Featured

Það er eitthvað rosalega rangt í þessu. Gamla konan er íbúi í Garðabæ og bærinn hennar á að vinna fyrir hana eins og aðra bæjarbúa. Það að málið vannst í héraði sýnir að eitthvað hefur konan haft til síns máls og það hefði átt að vera nóg fyrir bæinn.

J
Juliana Kjartansdottir
10 years ago Featured

Garðabær er bæjarfélagið mitt. Garðabær er stöndugur bær. Við eigum að bæta konunni (og hugsanlega fleirum) tjón sem var á engan hátt hennar sök. Ef bæjaryfirvöld sjá ekki ástæðu til þess þá verða bæjabúar að taka til sinna ráða.

S
Sigrún Gunnarsdóttir
11 years ago Featured

Algjörlega til skammar hvernig þetta mál þróaðist gömlu konunni í óhag. Sem fyrrum Garðbæingur vil ég mótmæla fjandsamlegri aðkomu bæjaryfirvalda í Garðabæ að málinu !

H
Halla Harpa Stefánsdóttir
11 years ago Featured

Sammála síðasta ræðumanni.....og ég skammast mín að búa í "Garðabæ" ef bæjarstjórn sýnir ekki sóna sinn í því að greiða skaðann. Mér finnst útsvari mínu vel varið þannig.

V
Vilhelmína Ragnarsdóttir Bjarnarson
10 years ago

Hafi Bæjarstjórn Garðabæjar ævinlega skömm á að fara svona illa með eldri íbúa sína. Þetta verður alþjóðleg skömm.m Það skal ég sjá til !

A
Anonymous
10 years ago

:(

Share Petition

Don't stop at signing, share the petition link with friends to multiply our impact

Copy link or share directly

Instagram
QR Code