Við undirrituð skorum á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að skrifa undir lög um ríkisábyrgð vegna Icesave. Við teljum að afleiðingar þess að hafna lögunum muni vera verri fyrir þjóðina en hljóti þau samþykkt, sérstaklega hvað varðar samskipti við önnur ríki. Af tvennu illu teljum við samþykkt laganna sem sagt skárri kostinn.
Við viljum einnig benda á þá staðreynd að utanríkisstefna Íslands hefur frá stofnun lýðveldisins verið til háborinnar skammar. Ísland hefur, á alþjóðavettvangi, hegðað sér eins og lítill frekur krakki sem suðar og suðar þangað til hann fær nákvæmlega það sem hann vill, ónæmur fyrir sjónarmiðum annarra. Vegna taktískrar staðsetningar okkar milli Nató og Sovétríkjanna komumst við upp með þetta þar til nýlega. Nú, þegar Ísland á fáa ef einhverja vini eftir teljum við kominn tíma til að breyta þessari stefnu til hins betra og taka ábyrgð á gjörðum okkar.
_________________________________________________________________ Að gefnu tilefni: Þeim sem koma ekki fram undir fullu nafni sem og fölsunum verður eytt af listanum. Þess ber einnig að geta að aðeins er hægt að skrifa undir einu sinni á dag frá hverri IPtölu.
Viðbót: Þetta var greinilega ekki nógu skýrt hjá mér, því enn eru margir sem kjósa nafnleynd og birtast því sem "Anonymous" á listanum. Sem stjórnandi undirskriftalistans sé ég nafnið EKKI öðruvísi, það er ein af fjölmörgum takmörkunum sem þessi vefsíða hefur. Ég get heldur ekki aftengt nafnleyndarmöguleikann, svo ég hef því neyðst til að eyða þeim öllum, ásamt öllum Andrésum Öndum og slíku, sem og þeim sem eru með augljóslega vitlausar kennitölur. Ef þú af-hakar við reitinn "Show my name in the online signature list" þá verður undirskriftinni þinni því miður eytt.
Við erum rétt svo að nálgast þúsund undirskriftir en þessi skriðþungi dugar ekki til að hrista upp í forsetanum. Þið þurfið að virkja tengslanetið ykkar strax og fá fólk til að skrifa undir svo við náum þessum áfanga fyrir lok dags. Ólafur Ragnar á ekki að fá frið á meðan hann situr með hendur í skauti og dregur lappirnar í Icesave málinu.
6 Comments
H
Helga Yamamoto
16 years ago
Featured
Ef forsetinn vill okkur vel þá skrifar hann undir. Við þurfum vini í heiminum ekki óvini.
G
Guðmundur Castillo
16 years ago
Featured
Loksins einhverja skynsemi að finna hér. Þetta er orðið vandræðalegt fyrir þjóðina.
B
Björn Okonkwo
16 years ago
Featured
Höfum við ekki gert nógu mikið af fíflum úr okkur? Takið ábyrgð núna.
J
Jón Klein
16 years ago
Featured
Þetta er komið gott. Við verðum að hætta þessu rugli og taka ábyrgð.
S
Sigrún Hughes
16 years ago
Featured
Algjörlega sammála. Ólafur þarf að láta af þessum ósköpum. Ísland getur ekki verið í einangrun út af þessu.
A
Anna Chavez
16 years ago
Featured
Er svo þreytt á þessari vitleysu. Samþykkja þetta svo við getum farið að hugsa um framtíðina í staðinn fyrir að stagast á fortíðinni.
Help this petition grow
Share it with friends to help reach
2,500 signatures.
Sign Petition
We never post to your account. Social sign-in is used only to verify your signature.
or sign with Email
Add a comment?
Your signature will be added via
.
Tell others why you're signing — it's optional.

Your signature will be added via . Tell others why you're signing — it's optional.
Signing with Google or Facebook verifies your signature instantly — no email needed.