Skip to main content
Aðstöðuvandamál knattspyrnudeildar FH

Aðstöðuvandamál knattspyrnudeildar FH

611 signatures 139 to reach 750
E
Elín M. signed
E
Erla s. signed
I
Inga H. signed
B
Bergsveinn G. signed
H
Herdís M. signed
E
Elsa H. signed
H
Hildur G. signed
S
Soffía Á. signed
J
Jón S. signed
H
Halla A. signed
BJ
Started by Birgir Jóhannsson 8 years, 10 months ago

Fundurforeldra og forráðamanna iðkenda knattspyrnu hjá knattspyrnudeild Fimleikafélags Hafnarfjarðar tekur undir og styður tillögur aðalstjórnar Fimleikafélags Hafnarfjarðar til lausnar á aðstöðuvanda knattspyrnudeildar Félagsins og krefst þess að bæjarstjórn Hafnarfjarðar komi að því að hrinda þeim í framkvæmd eigi síðar en strax.

Það er öllum ljóst sem vilja kynna sér málið að aðstaða til knattspyrnuiðkunar í FH er löngu sprungin og hafa foreldrar og forráðamenn í samráði við félagið í nokkur ár borgað aukalega fyrir aðstöðu sem félagið hefur sjálft byggt upp og staðið straum af. Er nú svo komið að félagið hefur þurft að grípa til sársaukafullra aðgerða til að laga æfingar og keppni að þeirri aðstöðu sem fyrir hendi er, með fækkun æfinga og æfinga á völlum í öðrum sveitarfélögum, auk þess sem FH hefur verið útilokað frá vetrarmótum á vegum KSÍ þar sem félagið getur ekki leikið heimaleiki sína á löglegum keppnisvelli. Félagið á með öðrum orðum engan heimavöll undir keppnisleiki.

Það hefur lengi verið ljóst að sú aðgerð myndi ekki duga til framtíðar ein og sér og hefur þess verið vænst í a.m.k. 2 ár að Hafnarfjarðarbær, í samvinnu við félagið, kæmi að framtíðarlausn á aðstöðuvanda knattspyrnunnar. Félagið hefur lagt fram nokkrar tillögur til lausnar en ekkert hefur gerst. Við það verður ekki lengur unað og því óskar fundurinn eftir svörum og aðgerðum sem kynntar verði eigi síðar en 15. september sem lagðar yrðu svo til grundvallar í fjárhagsáætlunargerð bæjarfélagsins vegna málaflokksins næstu ár.

Updates

Reached 500 supporters

September 5, 2017

Reached 100 supporters

August 30, 2017

79 Comments

S
sigurður magnús þorbergsson
8 years ago Featured

þetta þarf að laga strax! Hef ekki tök á að fara úr vinnu til að skutla á æfingar í öðru bæjarfélagi.

S
Sigmundur Pétur Ástþórsson
8 years ago Featured

Gera nýjan völl í löglegri stærð með skjól yfir líkt og Risinn. Hagkvæmt og hefur reynst vel.

G
Guðrún S Ríkarðsdóttir
8 years ago Featured

Skora á bæjaryfirvöld að bregðast við aðstöðuleysi í Kaplakrika. Ekki boðlegt að börn þurfi að sækja íþróttaiðkun í annað bæjarfélag.

E
Emil Stefánsson
8 years ago Featured

Það er kominn tími á að laga aðstöðuvandamálin í Kaplakrika. Hér er um að ræða mikinn fjölda af iðkenndum í yngri flokkum félagsins.

J
Jón Örn Gunnlaugsson
8 years ago Featured

Góð aðstaða er nauðsynjamál og að bæta hana ætti að vera kappsmál. Að maður tali nú ekki um að hafa meistaraflokkslið í bæði kvenna- og karlaflokki í efstu deild.

S
Súsanna Helgadóttir
8 years ago Featured

Aðstaða til knattspyrnuiðkunar er löngu sprungin og því nauðsynlegt að bæta úr því og búa ungu og efnilegu knattspyrnufólki viðunandi aðstöðu til æfinga og keppni. Íþróttir eru ein besta forvörn sem til er og því betri sem aðstaðan er, því fleiri sem stunda íþróttir og því lengur sem unglingar stunda íþróttir kemur til með að margborga sig til baka fyrir samfélagið.

S
Snorri Jónsson
8 years ago

Koma svo Hfjbær. Börnin okkar eiga betra skilið.

S
Soffía Árnadóttir
8 years ago

Framtíðin er þeirra

Help this petition grow

Share it with friends to help reach 750 signatures.

Sign Petition

We never post to your account. Social sign-in is used only to verify your signature.

or sign with Email

Add a comment?

Your signature will be added via . Tell others why you're signing — it's optional.

By signing, you accept iPetitions Terms of Service and Privacy Policy.

Share Petition

Don't stop at signing, share the petition link with friends to multiply our impact

Copy link or share directly

Instagram
QR Code