Skip to main content
Hækkum örorkulífeyri ! Styðjum minnimáttar!

Hækkum örorkulífeyri ! Styðjum minnimáttar!

967 signatures 33 to reach 1,000
E
Einar s. signed
K
Kristin P. signed
A
Antonia signed
H
Halldora S. signed
S
Sonja c. signed
G
Guðrun V. signed
S
Sveinn G. signed
S
Sigurlaug G. signed
I
Inda B. signed
S
Someone signed
GM
Started by Guðrún Jónína Magnúsdóttir 11 years, 2 months ago

STYÐJUM EFTIRFARANDI ÁLYKTUN ÖBÍ

Hækkun örorkulífeyris í 300.000 krónur innan þriggja ára.
28.5.2015


Segir í ályktun aðalstjórnar ÖBÍ frá í gær, þar sem tekið er undir kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar um hækkun lágmarkslauna.

Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) tekur undir kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar um hækkun lágmarkslauna í 300.000 kr. innan þriggja ára. Framfærsluviðmið almannatrygginga er undir 200.000 kr. og undir lágmarkslaunum fyrir dagvinnu. Hópur lífeyrisþega hefur búið við mjög bág kjör árum og áratugum saman vegna mjög lágra tekna. Lífeyrir og lágmarkslaun duga ekki fyrir lágmarksframfærslu. Því er óhjákvæmilegt að lagfæra kjör þessara hópa.
Lögum samkvæmt á lífeyrir almannatrygginga að breytast árlega í takt við launaþróun en þó þannig að hann hækki ekki minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Það hefur ekki verið raunin síðustu ár. Allt frá árinu 2009 hefur lífeyrir hvorki náð að halda í við þróun lægstu launa, verðlags- né launavísitölu.
Stjórnvöld hafa lýst því yfir að hagur ríkisins hafi vænkast. Skorað er á stjórnvöld að efna gefin loforð um að leiðrétta kjaragliðnun sem lífeyrisþegar hafa orðið fyrir á síðustu árum.
Aðalstjórn ÖBÍ gerir þá kröfu að lífeyrir hækki að lágmarki í samræmi við krónutöluhækkun lægstu launa í yfirstandandi kjarasamningagerð.

Er öryrki í fjölskyldunni þinni? finnst þér viðkomandi búa við mannsæmandi kjör?

Ertu sjálf/ur öryrki býrð þú við mannsæmandi kjör?

Sendum Alþingi og ríkisstjórn skýr skilaboð um álit okkar á aðbúnaði öryrkja.

Styðjum ÖBÍ og skorum á stjórnvöld að hætta að svelta minnimáttar.

Updates

Reached 1,000 supporters

June 8, 2015

June 1, 2015

I have been sending these signatures to the desks of decision makers all week to demand they address this gap in support. Post the link to your Facebook page and text three friends who need to know about this injustice. We are keeping the pressure on until the budget reflects the needs of our neighbors.

Reached 100 supporters

May 28, 2015

May 28, 2015

Við erum að nálgast 100 undirskriftir en þurfum meiri kraft til að ná þessum áfanga. Sendu krækju á þessa síðu á þrjá vini í dag og biðjið þá um að skrifa undir.

187 Comments

J
Jóhanna Þorgerður Eyþórsdóttir
11 years ago Featured

Það lifir enginn mannsæmandi lífi á launum undir 300 þúsund krónur. Þeir mega prófa það Alþingismennirnir sem segja að það sé ekki hægt að hækka bæturnar. Þeir myndu gefast upp á fyrsta degi.

J
Jónína Hjaltadóttir
11 years ago Featured

Það velur sér enginn örorku eða þá afkomu sem henni fylgir. Fátækt veldur andlegum veikindum og auknum kostnaði, bæði fyrir einstaklinginn og heilbrigðiskerfið. 300.000 kr skattleysismörk á þennan hóp og hærri bætur.

P
Perla Björnsdóttir
11 years ago Featured

ÞÚ ert ekki bara að skrifa undir að þeir sem eru öryrkjar í dag fái betra líf. ÞÚ ert að skrifa undir að ef ÞÚ, barnið þitt, vinir eða fjölskylda vakkni á morgun með ólækknandi sjúkdóm, verði fyrir vinnuslysi eða álíka. Er Þér/Þeim þá hjálpað til að lifa sómasamlegu lífi... ?

K
Kristín Hallgrímsdóttir
11 years ago Featured

komin tími til... það var aldrei mitt val að hafa ekki heilsu vegna m.s til að vinna og finnst börnin mín eiga sama rétt og börn annara foreldra sem vinna og fá sínar hækkanir.

Þ
Þórarinn Jónsson
11 years ago Featured

Eldri borgarar og öryrkjar eru líka fólk sem þarf að eiga fyrir húsaleigu, mat og öðrum nauðsynjum. Við hættum ekkert að lifa þá við fáum ekki að taka þátt í atvinnulífinu. Þegar ég fékk örlitlar tekjur, þá rýrnaði lífeyrir frá TR sem tekjunum nam.

Á
Ásdís Valdimarsdóttir
11 years ago Featured

þetta er lögbrot og það er sárt að geta ekki gefið barninu sínu að borða nema einu sinni á dag og þá er það ekki einu sinni alvöru máltíð í enda mánaðar

H
Hjalti berg Hannesson.
10 years ago

Það er til skammar hvað er illa farið með lífeyrisþega og sjúka.

K
Kristján Helgi Hafsteinsson
11 years ago

fynnst launabaráttan sem er í gangi í öllum stéttum, og á fyllilega rétt á ekki vera nógu mikið. það þarf að setja lög yfir markaðinn þannig að lán, matur,eldsneiti, leiga o.s.fr. hækki ekki umfram hækkun launa. við höfum séð alltof oft að þessar smánarhækkanir hjá öllum lágtekjuhópum, þar með talið öryrkjar, hverfa strax í hækkuðu neysluverði sem verður svo til þess að staða fólks versnar oft við þessar breytingar. það þarf að verðtryggja öll laun, því eins og öryrkjar vita umfram alþingi er að bætur okkar eru skráð sem laun og því alveg rétt að við hækkum líka í launum. ef það væri sett lög yfir markaðinn, laun verðtryggð og einnig sett lög um jafnari auðskiptingu í landinu, OG ÞEIM FRAMFYLGT AÐ FULLU!!! , þá værum við kominn annsi langt í okkar baráttu. svo vil ég bæta því við í restina, af hverju erum við að biðja um 300þúsund í heildarlaun? ættum við öll ekki að fara fram á 300þúsund í útborguðum launum? launin hjá okkur hækka ekki það mikið við að heildarlaun séu 300þúsund þegar ríki,sveitafélög, skattmann o.s.frv eiga eftir að taka tæpan þriðjung af laununum. krafann hjá öllum stéttum ætti að vera að allir hafi í það minnsta 300þúsund í ráðstöfunartekjur.

Help this petition grow

Share it with friends to help reach 1,000 signatures.

Sign Petition

We never post to your account. Social sign-in is used only to verify your signature.

or sign with Email

Add a comment?

Your signature will be added via . Tell others why you're signing — it's optional.

By signing, you accept iPetitions Terms of Service and Privacy Policy.

Share Petition

Don't stop at signing, share the petition link with friends to multiply our impact

Copy link or share directly

Instagram
QR Code