Í fjölskyldu og íþróttabænum okkar saknar þess margur að geta ekki farið og teygt úr kroppnum í vatnsgufunni, slakað á í pottunum eða synt nokkrar ferðir í útilauginni að kvöldlagi líkt og áður.
Því biðlum við undirrituð til stjórnar Reykjanesbæjar að endurskoða opnunartíma Sundmiðstöðvarinnar við Sunnubraut og hafa opið til kl 22:00 alla daga svo að fleiri geti nýtt sér þessa perlu sem Sundmiðstöðin okkar vissulega er.
Með virðingu og vinsemd.
Íbúar og velunnarar Reykjanesbæjar.
Lýst vel á að lengja opnunartíma laugarinnar til 22:00 á kvöldin takk fyrir :)