Skip to main content
Við undirritaðir frambjóðendur til stjórnlagaþings skorum á RÚV til að sinna skyldum sínum fyrir komandi stjórnlagaþingskosningar

Við undirritaðir frambjóðendur til stjórnlagaþings skorum á RÚV til að sinna skyldum sínum fyrir komandi stjórnlagaþingskosningar

174 signatures 76 to reach 250
S
social b. signed
G
gfhyrf signed
T
Thomas P. signed
C
Clay S. signed
E
Elías H. signed
R
Róbert H. signed
B
Bergvin O. signed
H
Helgi J. signed
S
Sólveig D. signed
E
Einar Ö. signed
Started by Anonymous 15 years, 9 months ago
Við undirritaðir frambjóðendur til stjórnlagaþings skorum á Ríkisútvarpið til að sinna skyldum sínum fyrir komandi stjórnlagaþingskosningar.

Greinargerð
Samkvæmt lögum hefur Ríkisútvarpið ákveðnum skyldum að gegna í íslensku samfélagi. Í 3. gr. laga um Ríkisútvarpið er kveðið á um hlutverk þess og skyldur. Þar segir meðal annars.

Útvarpsþjónusta í almannaþágu felur í sér eftirfarandi:
Að veita almenna fræðslu og gera dagskrárþætti er snerta málefni lands og þjóðar sérstaklega og með þeim hætti tryggja hlutlæga upplýsingagjöf um íslenskt samfélag.

Að veita víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu um innlend og erlend málefni líðandi stundar og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða.

Þann 27. nóvember næstkomandi fara fram sögulegar kosningar hér á landi til stjórnlagaþings og teljum við, undirritaðir frambjóðendur til stjórnlagaþings, það vera skyldu Ríkisútvarpsins að „veita hlutlæga upplýsingagjöf“ fyrir kosningarnar. Slík umfjöllun felst meðal annars í því að fjalla um frambjóðendur, hlutverk stjórnlagaþings og framkvæmd kosningarinnar.

Ríkisútvarpið virðist hafa tekið þá ákvörðun að fjalla sem minnst um stjórnlagaþingið, að því virðist vegna þess hversu margir frambjóðendurnir eru. Skiljanlega er erfitt að fjalla með viðunandi hætti um stefnu 523 frambjóðanda með hefðbundinni útvarps- og sjónvarpsdagskrá. Við sem erum í framboði teljum þó að Ríkisútvarpið geti sinnt skyldu sinni með margvíslegum hætti.

Við skorum því hér með á Ríkisútvarpið til að sinna skyldum sínum um „víðtæka, áreiðanlega, almenna og hlutlæga fréttaþjónustu.“

Frambjóðendur til stjórnlagaþings 2010

Updates

Reached 100 supporters

November 15, 2010

6 Comments

A
Anna Lambert
15 years ago Featured

Vaknið RÚV!!! Þetta er stór dagur fyrir Ísland.

H
Helga Das
15 years ago Featured

Vorum við ekki að borga fyrir þessa þjónustu?? Látið þetta gerast strax.

S
Sigrún Lloyd
15 years ago Featured

Alveg sammála. Það er hlutverk ríkisfjölmiðilsins að upplýsa fólkið í landinu um svona stóra hluti.

J
Jón Zhang
15 years ago Featured

RÚV er að bregðast skyldum sínum hérna. Þetta er svo mikilvægt fyrir framtíðina.

G
Gunnar Medina
15 years ago Featured

Hvar er umfjöllunin? Það er eins og þessar kosningar séu ekki að fara að gerast.

Ó
Ólafur Jenkins
15 years ago Featured

Skammarlegt að RÚV skuli þegja yfir þessu. Fólk þarf að vita hverja það er að kjósa.

Help this petition grow

Share it with friends to help reach 250 signatures.

Share Petition

Don't stop at signing, share the petition link with friends to multiply our impact

Copy link or share directly

Instagram
QR Code