Skip to main content

we actually did it because they agreed to stop cutting the supplement and honestly my hands are shaking while i type this. i cannot wrap my head around the fact that this is finally changing for us and so many others who were stuck in that same impossible trap. keep …

June 25, 2018

Heimilisuppbót fellur niður

Heimilisuppbót fellur niður

🏆 Won — 195 supporters Verified

Final supporters

G
Gudmundur E.
H
Hannes G.
J
Jón E.
G
Gudmundur K.
Á
Áslaug H.
I
Ingibjörg B.
K
kolbrún l.
B
Bernhard J.
E
Elínrós E.
A
Aðalheidur G.
+185 more
ÁJ
Started by Ásta María Jensen 8 years, 4 months ago

Þar sem ég er með Geðfötlun og sé um son minn er ég að biðla til fólks. Þar sem við erum bæði öryrkjar og búum á sama heimili fellur heimilisuppbót niður þar sem ég er með 18 ára mann inn á heimilinu. Ég er að reyna að reka heimilið fyrir mig og hann þar sem hann er háður búsetu frá ríkinu. Á meðan hann er í framhaldsskóla er hann á undanþágu í sambandi við að mín heimilisuppbót fellur ekki niður fyrr en klárar (eftir ár) hann er búin að missa sína. Hann er búin að missa stuðningsfjölskyldu þegar hann varð 18 ára.

Heimilið fær ekki umönnunargreiðslur vegna þjónustu við hann eftir 18 ára. Á meðan ég sem öryrki með öryrkja sem er fullorðin maður inni á heimili hjá
skerðist ég um 48.564 á mánuði og sonur minn skerðist líka um 48.564 kr á mánuði þar sem hann er inni á heimili hjá mér, á meðan ríkið borgar rúmlega 400 þúsund ef hann væri á sólahrings heimili fyrir mann með sömu þjónustuþörf.

Ég er búin að reyna að fara á vinnumarkaðinn að reyna að bæta mér þessa skerðingu upp en þegar ég vann mér inn 66.000 kr fór hluti af því í skatta og framfærsluuppbót datt svo niður, króna á móti krónu, við það að fara að vinna sem þýðir að ég var að fá 10.000 útborgað. Ég veiktist við þetta þar sem ég hætti á lyfjum til að geta unnið.

Búsetumál eru í ólestri og langir biðlistar. Hann á rétt á NPA (Notendastýrð persónuleg aðstoð) Félagsráðgjafi telur að hann geti ekki nýtt sér það. Er ekki tími til komin að gera undanþágu á að heimilisuppbót falli ekki niður þar sem einstaklingurinn er háður búsetu á meðan hann fær ekkert annað.

Updates

May 20, 2018

I honestly never thought this would gain this much steam but it feels like people are finally starting to see how broken this system is for families like mine. It is terrifying to think about the reality of the situation but having so many of you behind me makes me feel like maybe things can actually change for the better.

Reached 100 supporters

May 20, 2018

28 Comments

G
Guðbjörg Gísladóttir
8 years ago Featured

allt of magir ungir fullorðnir öryrkjar fá ekki eigið húsnæði. Það er ekki einungis heimilisuppbótin sem fellur niður, heldur deilir fólk heimli með öðrum þannig að uppbót til framfærslu (krónu móti krónu skerta uppbótin) lækkar líka. Þannig hefur fólk ekki möguleika á að sjá fyrir nauðsynjum.

H
Helga Einarsdóttir
8 years ago Featured

Þetta er til háborinnar skammar og ekki bara í þessu tilfelli heldur öllum tifellum þegar börn öryrkja verða 18 ára lagið þetta strax yfir alla línuna!

E
Embla
8 years ago Featured

Það er skítt að bæturnar lækka um rúmlega 40.000kr á mánuði við að afkomandi verði 18ára. Nema þá afkomandi sé í fullu námi til 20ára. Hvert á afkomandinn að fara? Það er frekar erfitt að finna húsnæði í dag.

A
Auður Ragnarsdóttir
8 years ago Featured

Það þarf að endurskoða þetta kerfi með hag fólksins að leiðarljósi. Það gæti reynst ríkinu ódýrara til lengri tíma að skerða ekki þessar greiðslur ef að það gefur ákveðnum hópi fólks meira svigrúm til að búa heima hjá sér lengur auk þess sem það eykur sjálfsmynd þeirra og virði þeirra í samfélaginu.

I
Ingibjörg Einarsdóttir
8 years ago Featured

Fólk lækkar ekki í launum á launamarkaðinum við 18 ára aldurs barnana... hví ættu laun öryrkja að lækka

G
Gréta Sóley Sigurðardóttir
8 years ago Featured

Alveg komin tími á að endurskoða stöðu öryrkja sem búa heima þar sem foreldri er umönnunaraðili! Það er út í hött að tekjur beggja þessa einstaklinga muni skerðast vegna þess eins að drengurinn verður 18 ára. Aðstæður verða enn þær sömu.

G
Gudmundur Kristjansson
8 years ago

Velferðarkerfið er allt í ólestri og mál ykkar er dæmigert klúður kefisins

V
Vigdís Ólafsdóttir
8 years ago

Fáránlegt að þetta skuli vera staðan. Þetta þarf að laga strax.