Skip to main content
Leikskólapláss fyrir börn í Reykjavík fyrir 2 ára afmælisdaginn!

Leikskólapláss fyrir börn í Reykjavík fyrir 2 ára afmælisdaginn!

173 signatures 77 to reach 250
E
ecbacyosuqq signed
R
Ragnar S. signed
S
Someone signed
S
Someone signed
H
Halldóra B. signed
A
Aldís S. signed
E
Emilía K. signed
O
omomfw signed
S
Someone signed
A
Anna M. signed
Started by Anonymous 14 years ago


Við undirrituð erum foreldrar barna í Reykjavík og skorum á borgaryfirvöld að tryggja öllum börnum leikskólapláss fyrir tveggja ára afmælisdaginn! Við teljum það brot á mannréttindum þeirra að vera mismunað um menntun eftir búsetu foreldra, þar sem í flestum sveitarfélögum landsins fá börn úthlutað leikskólaplássi fyrir og um 18 mánaða aldur. Þetta er gert óháð skuldastöðu sveitarfélaganna og hefur eingöngu að gera með forgangsröðun þjónustu í hverju sveitarfélagi fyrir sig.  Önnur dagvistunarúrræði sem foreldrum bjóðast, dagforeldrar og ungbarnaleikskólar, vinna upp til hópa gott og metnaðarfullt starf en fylgja almennt ekki aðalnámsskrá Mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Námsskráin hefur meðal annars að meginmarkmiði að fylgjast með og efla alhliða þroska barna í náinni samvinnu við foreldra, skipuleggja málörvun og hlúa að börnum andlega, vitsmunalega og líkamlega í samræmi við þarfir hvers og eins. Skipulögð menntun er því engan veginn sambærileg á almennum leikskólum og hjá dagforeldrum/ungbarnaleikskólum.

Það er skýlaus krafa okkar að börnin okkar sitji við sama borð og jafnaldrar þeirra í öðrum bæjarfélögum og hljóti sambærilega menntun skv. aðalnámsskrá leikskóla.

Updates

Reached 100 supporters

August 25, 2012

6 Comments

H
Helga Edwards
13 years ago Featured

LOKSINS! Erum búin að bíða eftir plássi í marga mánuði og þetta er að gera okkur gjaldþrota. Hættið að mismuna börnunum okkar

J
Jón Rodriguez
14 years ago Featured

Alveg sammála. Það er ótrúlegt að Reykjavík geti ekki gert betur en þetta.

S
Sigurður Mills
14 years ago Featured

Dýrt og erfitt að finna dagforeldra sem passa. Þetta þarf að breytast strax.

G
Guðrún Jordan
14 years ago Featured

Þetta er algjört rugl. Við erum að borga fullt af útsvari en fáum enga þjónustu. Börn þurfa að komast í leikskóla miklu fyrr!

B
Björn Gibson
14 years ago Featured

Reykjavík á að vera leiðandi en ekki eftirbátur í þessum málum. Óþolandi framkoma við unga foreldra.

A
Anna Aguilar
14 years ago Featured

Sammála því að 2 ár er of seint. Börnin eiga rétt á þessari menntun alveg eins og í öðrum bæjum. Gerum eitthvað í þessu.

Help this petition grow

Share it with friends to help reach 250 signatures.

Your share link

Share directly