Skip to main content

The Education Board has finalized the decision to implement summer operations for our preschools. This change secures the stability we pushed for and ensures our children maintain access to their familiar environments. I will be monitoring the upcoming implementation phase to ensure these new policies are executed as promised.

May 8, 2020

Sumaropnanir á leiksskólum Hafnarfjarðarbæjar

Sumaropnanir á leiksskólum Hafnarfjarðarbæjar

🏆 Won — 169 supporters Verified

Final supporters

F
For f.
A
Anna S.
Á
Árni F.
F
Fróði K.
S
Someone
S
Sandra B.
S
Someone
L
Lilja G.
K
Kristín B.
K
Kjartan B.
+159 more
HR
Started by Helga Reynisdóttir 6 years, 6 months ago

Ég styð þá ákvörðun fræðsluráðs að láta verða að sumaropnunum í leiksskólum Hafnarfjarðar.

Við foreldrar, núverandi og tilvonandi leikskólabarna í Hafnarfirði viljum með undirskrift okkar sýna stuðning okkar við ákvörðun fræðuslráðs um sumaropnun í leikskólum Hafnarfjarðar sumarið 2021.

Okkur finnst mikilvægt að gera allt sem hægt er til að:

Auka samveru foreldra og barna.

Minnka streitu þeirra barna sem annars þurfa að þvælast milli ættingja, vina, gæsluvalla, vinnustaða foreldra og barnapía þegar mamma og pabbi geta ekki verið í fríi á þeim tíma sem leikskólar loka.

Gera börnunum kleift að vera í sínu örugga umhverfi sem leikskólinn er, með starfsfólki sem það þekkir úr leikskólanum á meðan mamma og pabbi vinna.

Gera börnunum kleift að vera saman í fríi með foreldrum.

Minnka streitu foreldra við skipulagningu fría.

Minnka fjárhagsáhyggjur þeirra foreldra sem þurfa að öðrum kosti að greiða fyrir barnagæslu meðan leikskólinn lokar og greiða fyrir leikskólann þegar þau síðan fara í frí. Þetta minnkar töluvert líkurnar á því að sumar fjölskyldur geti tekið frí saman.

Annað sem vert er að skoða:

Með breytingunum ávinnst margt annað gott, td. að auðveldara verður fyrir foreldra sem eru í námi að fá sumarvinnu og verða sér útum dýrmæta reynslu tengda sínu námi yfir sumartímann. Þetta fólk hefur ekki fengið sumarvinnu hingað til vegna þess að það þarf að vera í fríi í júlí. Eða það sem verra er, sum þeirra hafa ekki haft efni á að sleppa sumarvinnu og vera í fríi með börnunum sínum en geta nú fengið sumarvinnu hluta sumars en tekið frí með börnunum sínum utan aðal sumarfrístímans.

Það er ekki hægt að gera þá kröfu á vinnuveitendur að gefa fólkinu alltaf frí í júlí, sumir ráða ekki fólk í vinnu sem á leikskólabörn því það er svo mikið vesen að einhver annar(leikskólarnir) ákveði hvenær starfsmaðurinn fer í sumarfrí.

Núverandi fyrirkomulag veldur mikilli streitu á vinnustöðum þar sem foreldrar leikskólabarna þurfa að berjast um júlí-fríið til að geta verið með fjölskyldunni í fríi. Með breytingunni skapast jákvæðara og betra andrúmsloft á vinnustöðum.

Leikskólar í Danmörku og Þýskalandi hafa starfað svona svo árum skiptir við mikla ánægju. Bæði þessi lönd koma betur út í PISA könnun, svo breyting á skólastarfi yfir sumartímann hefur ekki neikvæð áhrif á getu barna í skóla.

Það er ekki rétt að þetta sé án samráðs, leikskólakennurum gafst tækifæri til að tjá sig um málið í könnun sem gerð var í fyrra en í þessari könnun voru bæði fjölvarpsspurningar og opinn texti þar sem hægt var að segja hug sinn, svarhlutfall þeirra var því miður mjög lélegt.

Bæjarfulltrúi hefur sett það skýrt fram að hlustað verði á sjónarmið allra og að breytingin verði unnin í samstarfi við okkar frábæra fagfólk og foreldra. Við teljum því að þetta séu ótímabær mótmæli þar sem breytingin er ekki full mótuð og að það er rúmt ár til stefnu.

40% starfsmanna leikskólanna vill vera í fríi í júní eða ágúst, starfsfólkið svaraði því í nafnlausri könnun án alls þrýstings, sem gerð var í fyrra. Breytingin eykur líkur á að starfsfólk leikskólanna geti tekið frí með sínum maka og fjölskyldu.

Foreldrar eru hvattir til að stytta viðveru barna í leiksóla og taka auka frí kringum hátíðir því það er mikilvægt fyrir börnin að verja meiri tíma með foreldrum, á sama tíma er talað gegn breytingum sem einmitt auka samveru foreldra og barna.

Updates

March 3, 2020

The scale of this response confirms the urgency of the childcare issue in our community. I am currently preparing a formal proposal to present to the education committee to ensure these signatures translate into administrative action.

Reached 100 supporters

March 3, 2020

16 Comments

G
Gunnar Khan
6 years ago Featured

Frærasta mál. Þetta er svo mikil streita á öllum heimilum þegar lokunin stendur yfir.

S
Sigrún Warner
6 years ago Featured

Algjörlega kominn tími til að breyta þessu. Þetta mun hjálpa okkur svo mikið í skipulagningu sumarsins.

H
HIldur Pálsdóttir
6 years ago Featured

Ég hef búið á stað með svipuðu kerfi og það var algerlega frábært fyrir fjölskylduna að hafa valið. Á þeim tíma sem börnin voru í leikskólanum, þó það væru ekki mörg, leið þeim mjög vel. Ég treysti leikskóla- og deildarstjórum til þess að ráða hæft starfsfólk.

A
Anonymous
6 years ago Featured

Það myndi létta talsvert hjá þér og mínum ef sveigjanleikinn væri meiri Þá gæti fjölskyldan loksins tekið langt frí öll saman

G
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir
6 years ago Featured

Að hafa tök á því að skipuleggja sumarið með meiri sveigjanleika væri svo mikils virði. Margir sem hafa ekki tök á því að fara í frí á einum stærsta mánuðinum í t.d. ferðaþjónustu

V
Vala Steinsdottir
6 years ago Featured

Styð þessa ákvörðun heilshugar, fannst þetta galin raunveruleiki þegar ég flutti heim að horfa á fólk keppast um sumarfrístíma í vinnu, til að fá frí í leikskólafríinu, og geta jafnvel ekki farið í frí saman. Þetta er líka frábært tækifæri fyrir leikskólana að geta ráðið sumarstarfsmenn yfir allt sumarið.

L
Lilja Dögg Gylfadóttir
6 years ago

Nútímavæðum Hafnarfjörð

S
Sæunn Þorkelsdóttir
6 years ago

Flott framtak