Skip to main content

The council backed down and the park is safe. We won. Stay sharp to make sure they keep their word.

October 31, 2017

Verndum Sigtúnsgarðinn okkar!

Verndum Sigtúnsgarðinn okkar!

🏆 Won — 398 supporters Verified

Final supporters

S
Sigurður Þ.
Á
Ásdís Ý.
G
Guðmundur K.
H
Hjordis B.
I
Inga L.
M
Margrét B.
J
Johanna K.
S
Someone
B
Bjarmi S.
R
Ragnheiður G.
+388 more
AS
Started by Axel Sigurðsson 9 years ago

Ágætu íbúar Árborgar,

Nú er í auglýsingu deiliskipulagsbreyting sem snýr að miðbæjarsvæði Selfoss, eða Sigtúnsgarði og nærliggjandi svæðum. Skv. því skipulagi mun verulegur hluti Sigtúnsgarðsins fara í hendur þeirra aðila sem hyggja á framkvæmdir þar, Sigtúns þróunarfélags ehf. Ef deiliskipulagið verður samþykkt eins og það er auglýst munu íbúar Árborgar tapa stórum hluta af Sigtúnsgarði undir þá byggð sem áformuð er, þó öðru sé haldið fram.

Uppi hafa verið hugmyndir á meðal íbúa sveitarfélagsins að í Sigtúnsgarði verði þegar fram líða stundir fallegur garður uppbyggður með afþreyingu fyrir almenning og almennt fallegt og gróið umhverfi. Þessi markmið geta vel farið saman með einhverri uppbyggingu á miðbæjarsvæðinu en sú breyting sem nú er auglýst tekur yfir um helming þess svæðis sem við höfum hingað til talið til Sigtúnsgarðs.


Ljóst er að ef skipulagsbreytingin nær fram að ganga verður ekki hægt að halda þær hátíðir sem árlega eru haldnar með sama hætti og verið hefur vegna plássleysis í garðinum í ört stækkandi sveitarfélagi. Þetta teljum við undirrituð óásættanlegt og höfum því hafið undirskriftarsöfnun gegn deiliskipulagsbreytingunni.


Kæru íbúar, tíminn er naumur þar sem að skila þarf inn athugasemdum við skipulagsbreytingunum fyrir 29. ágúst.

Tökum höndum saman, verndum Sigtúnsgarðinn og skrifum undir þessa áskorun gegn deiliskipulagsbreytingunni. Undirskriftum verður skilað til framkvæmdastjóra Árborgar þegar henni lýkur þann 28.ágúst.

Hólmfríður Einarsdóttir, Davíð Kristjánsson, Axel Sigurðsson, Magnús Ragnar Magnússon, Klara Öfjörð, Steindór Guðmundsson, Björk Reynisdóttir, Sigurður Magnússon, Gísli Ragnar Kristjánsson og stuðningsmenn.

Frekari upplýsingar má sjá á https://www.facebook.com/sigtunsgardur

Updates

Reached 250 supporters

August 17, 2017

August 17, 2017

The momentum is incredible. This shows how much our green space actually means to this community.

August 16, 2017

We are approaching two hundred and fifty signatures. Keep the momentum going until the deadline.

Reached 100 supporters

August 15, 2017

62 Comments

S
Sigrún Skúladóttir
9 years ago Featured

Þetta er algjör skandall ef af þessu verður..Þarna má vera kaffihús og fallegur garður eins og tíðkast í mörgum stórborgum það þurfa ekki að vera byggingar á öllum auðum svæðum.....

R
Ragnhildur Sævarsdóttir
9 years ago Featured

Núverandi hugmyndir um miðbæjargarðinn eru til háborinnar skammar. Það þarf ekki sífellt að finna upp hjólið, garður með fallegum gróðri, leiktækjum í anda skátanna og sléttur inn á milli er það sem koma skal.

A
AnnaMM
9 years ago Featured

Vil bæði byggingar og garð.....en legg mikla áherslu á að græna svæðið verði ekki minnkað....okkur veitir einfaldlega ekkert af því ef við ætlum bæði að koma upp, bekkjum, gróðri og tækjum til afþreyingar dags daglega og eins til að halda bæjarhátíðarnar flottu með öllum okkar gestum....

B
Baldur Róbertsson
9 years ago Featured

er bæjarstjórnin að blekkja íbúana með því að tala um að garðurinn minki ekki en samkvæmt þessu er búið að taka ca.30% af honum. Það eru kosningar á næsta ári munum það

S
Sigríður Ólafsdóttir
9 years ago Featured

Græna svæðið má ekki minka svona mikið. Ef byggja á " gömul " hús mega þau vera í sama stíl og t.d. Smáratún og Kirkjuvegur EKKI eftiröpun á húsum annarra bæjarfélaga.

B
Bjork
9 years ago Featured

Ég vil að garðurinn verði áfram okkar eign og verði notaður sem útivistarsvæði og leiksvæði fyrir komandi kynslóðir.

H
Helga Gunnars
8 years ago

!!

H
Hjordis B Asgeirsdottir
8 years ago

Líst ekkert á gervi-gamlabæ.