Árið 1987 var St. Jósefsspítali í Hafnarfirði seldur. Seljendur voru St. Jósefssystur, sem byggðu spítalann og störfuðu þar sem sjálfboðaliðar þangað til síðustu systurnar hættu fyrir aldurssakir.
Þegar þær seldu spítalann tóku þær það loforð af kaupendum sem voru Hafnarfjarðarbær og ríkissjóður að St. Jósefsspítali yrði rekin áfram sem sjúkrahús.
Það gekk eftir til 1. desember 2011. Þá var spítalanum lokað af Guðbjarti Hannessyni þáv. heilbrigðisráðherra en af umdeilanlegum ástæðum.- Loforð og forsenda sölunnar vour svikin.
Í dag eru aðstæður gjörbreyttar og full ástæða til þess að endurræsa starfsemi spítalans. Þrjár grundvallarástæður liggja þar að baki
1. Skortur er á hjúkrunarrými á landinu 2. Loforð var gefið. Loforð eru skulbindandi og þau ber að halda 3. Hafnfirðingar eru mótfallnir því að spítalinn skuli vera lokaður - það er óumdeilt
Hægt er að hefja starsemi í spítalanum aftur. Ýmsar leiðir eru færar í því.
Þessum undirskriftarlista verður komið á framfæri við þá/þann, sem aðstandendur listans telja líklega til að láta verkin tala í þessum efnum. Frambjóðendum í næstu sveitarstjórnarkosningum í Hafnarfirði verður líka kynntur vilji þeirra sem vilja opna spítalann. Enduropnun St. Jósefsspítala er þannig í raun kosningamál standi vilji kjósenda til slíks.
lofrod eru lofrod. það var gengið á bak orða sinna við systurnar og það þarf að laga það strax.
B
Bjarni Chen
12 years ago
Featured
hættið þessu rugli og opnið spítalann aftur. vantar svo sannarlega pláss í kerfið.
S
Sigrún Wilkinson
12 years ago
Featured
Þetta er algjört klúður hjá bænum. Húsið stendur tómt og vanrækt á meðan það vantar pláss fyrir aldraða. Opnum aftur núna!
H
Helga Richards
12 years ago
Featured
St. Jósefsspítali átti alltaf sérstakan sess í hjarta okkar Hafnfirðinga. Sárgrætilegt að sjá þetta frábæra hús nýtast ekki til góðra verka.
B
bryndís valbjarnardóttir
12 years ago
Featured
Ég myndi vilja sjá systur, nunnur starfa við spítalann þegar hann verður opnaður að nýju
K
Kristján Jóhann Matt
12 years ago
Featured
Guðlaugur þór vildi breyta starfsemini og tryggja að st jósefs yrði rekinn áfram en það var stoppað af samfó! Synd að sjá þetta fallega hús hafa ekki hlutverk.