Skip to main content

Status: Closed — this petition is no longer accepting signatures.

Mótmæli vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Borgarbraut 55 – 59

Mótmæli vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir Borgarbraut 55 – 59

Closed — 52 supporters Verified

Final supporters

S
Sigridur D.
A
Arsaell R.
E
Emma G.
S
Sara O.
L
Linda H.
S
Someone
J
Johanna S.
S
Someone
H
Haukur H.
A
Agust S.
+42 more
JB
Started by Jón Bjarni 10 years, 7 months ago

Við undirritaðir íbúar í Borgarbyggð viljum mótmæla skipulagsáformum, sem kynnt hafa verið og gera ráð fyrir allt að 7 hæða háhýsum á lóðunum Borgarbrautar 55 – 59.

Í kynningu á breytingu deiluskipulagsins er talað um minnkað byggingarmagn frá því sem áður var áætlað, en við teljum það þvert á móti aukið. Skv. aðalskipulagi 2010-2022 er nýtingarhlutfall miðsvæðis 1,0 en þarna virðist það fara langt yfir það. Er þá spurning hvort þettta deiliskipulag standist skv. núverandi aðalskipulagi.

Við teljum að byggingar í þeirri hæð sem þarna eru áætlaðar verði lýti á miðbænum og ekki í samræmi við bygginarhefð í bænum.

Bílastæði virðast vera of fá þrátt fyrir mikið malbik, en aðgengi erfitt frá Borgarbraut.

Þá er ljóst að umferðarþungi mun margfaldast á svæði sem þegar ber illa þá umferð sem þar fer um.

Við álítum svæðið vindasamt og teljum háhýsi auka vindhviður.

Mikilli hæð húsa og miklu bygginarmagni á reitnum Borgarbraut 59 var kröftulega mótmælt af nágrönnum í kynningarferli skipulags 2005 og 2006. Auk þess var sveitastjórn afhentur listi 1.febrúar 2006, þar sem 144 íbúar andmæltu háhýsabyggð (ekki var gengið í hús með lista). Ekkert tillit virðist hafa verið tekið til þess á seinni stigum skipulags. Við væntum þess að tekið verði tillit til vilja íbúa í þetta sinn.

sjá nánar: http://borgarbyggd.is/Files/Skra_0073416.pdf

Updates

January 26, 2016

The massive surge in support proves the people of Borgarbyggð are finally fed up with the local council ignoring our concerns. These developers think they can just shove these towers down our throats while ignoring the rules but they clearly underestimated how much we value our town.

8 Comments

H
Helga Patterson
10 years ago Featured

Umferðin í kringum Borgarbraut er nú þegar frekar slöpp. Þetta mun bara gera allt vitlaust þegar fólk reynir að komast að og frá.

Ó
Ólafur Lin
10 years ago Featured

Sækjum um betri lausn. Byggjum 2-3 hæðir og höfum þetta í samræmi við það sem fyrir er. Ekki eyðileggja bæinn með einhverjum steinsteypukössum.

A
Agust Smari Beaumont
10 years ago Featured

Hvet sveitastjórn að opna ferlið betur þegar það kemur að nýbyggingum sem þessari og opna ferlið þannig að íbúar geti tekið meiri þátt í ferli sem þessu.

G
Guðrún Simmons
10 years ago Featured

Algjörlega sammála. Þetta er allt of stórt fyrir þennan stað.

M
Morten Lange
10 years ago Featured

Ekki gott að hafa svona há hus. Hægt að byggja þétt og skilvirka byggð með lægri hús. Tek reyndar ekki undir hræðslunni tengd bílastæðum. Ef bílastæði eru vandamál vegna þess að þau fyllast þá eru bílastæðin of ódýr.

S
Siggi Fuentes
10 years ago Featured

7 hæðir? Er fólkið í sveitarstjórninni alveg með öllu sjálfu sér? Þetta eyðileggur heildarsvipinn á bænum.

A
Asrun Magnusdottir
10 years ago

Nei takk!

M
Maria Erla Gudmundsdottir
10 years ago

verður skelfilegt á þessum stað nýtt morgunblaðshús bara í borgarnesi núna