Skip to main content

Status: Closed — this petition is no longer accepting signatures.

Leyfum miðbænum að blómstra

Leyfum miðbænum að blómstra

Closed — 26 supporters Verified

Final supporters

H
Hólmfríður e.
M
Margret B.
C
Charlotta
S
Sunneva G.
A
Arilíus Ó.
B
Björgvin R.
E
Einar R.
S
Someone
G
Guðrún R.
G
Gunnar
+16 more
Started by Hlynur Þór 8 years, 11 months ago

Frá því að Höfn var jöfnuð jörðu þá hefur ekkert verið á því svæði (svæðiðbeint á móti brúnni). Alltaf þegar áform um nýjan miðbæ hafa staðið yfir hafa neikvæðir og þröngsýnir bæjarbúar ákveðið að það skuli kæfa. Árið 2015 kom Sigtún þróunarfélagið með þá frábæru hugmynd að það ætti að endurbyggja gömul hús sem horfið hafa af þessari jörðu, og mynda þannig bæjarkjarna sem við getum kallað miðbæ. Ekki aðeins mun þetta skapa líf í bæinn, og mun hann hafa góð áhrif á Selfoss á heildina, heldur er hann alveg óskaplega fallegur, og það getur maður séð á heimasíðuni þeirra hér: http://www.midbaerselfoss.is . Ég varð fyrir miklu sjokki þegar ég sá að fólk vildi frekar halda í stórt autt svæði, þar sem er ekkert nema sandur og yfirgefin markaður, heldur en að láta það víkja fyrir fyrirmynda miðbæ. Koma svo! Látum okkar raddir heyrast líka! Látum Árborg vita að við viljum þennan miðbæ! Gleymum ekki að sigtúnsgarðurinn muni heldur betur fá andlitslyftingu eftir að það er búið að byggja miðbæinn.


Á meðan ég man, þá skulum við ekki gleyma að sigtúnsgarðurinn er aldrei notaður nema þrisvar á ári. Allan ársins hring stendur hann auður, og ekki eitt einasta mannslíf að sjá. En með nýjum miðbæ gæti þetta breyst. Leyfum honum að blómstra og ég lofa, að allir verða ánægðir og stoltir af nýjum miðbæ þegar hann er tilbúin :)

Updates

August 19, 2017

The momentum behind this petition is proving that the short-sighted obstructionists in our town do not speak for all of us. We are finally forcing the local leadership in Árborg to face the reality that this empty patch of dirt is an embarrassment. Keep pushing because the people who want to keep our town trapped in the past are clearly starting to panic.

6 Comments

J
Jón Saunders
8 years ago Featured

Algjörlega sammála! Selfoss þarf alvöru miðbæ frekar en þetta auða tóm sem er þarna núna. Það er kominn tími til að eitthvað gerist :)

H
Helga Ward
8 years ago Featured

Þetta er löngu tímabært. Bærinn lítur út eins og hann sé í eyðingu miðsvæðis, svo þetta húsaskipulag myndi breyta öllu til hins betra.

D
Davíð Bragason
8 years ago Featured

Þetta er flott hugmynd, það er ekki betra að hafa "miðbæinn" sem einn langan orm við umferðarmestu götu bæjarins. Með þessu yrði honum þjappað aðeins saman þar sem hægt væri með enn betra aðgengi en er í dag að skapa svolítið líf. Einnig hugsa ég að smáverslanir eigi greiðari aðgang inná markaðinn þar sem margir fara um fótgangandi. Nýjan biðbæ takk! :-)

H
Hafsteinn Óskar
8 years ago

Það má vel vera að garðurinn sé vel nýttur á þeim hátíðarhöldum sem þar eru haldin. En slík hátíðahöld eiga sér bara stað örfáum sinnum á ári og þess á milli er þarna það sem ég myndi frekar kalla mýri en garð. Þetta er fyrsta sýn sem blasir á móti fólki þegar það kemur akandi yfir Ölfusárbrú og maður spyr sig hvort þetta sé sú ímynd sem við viljum að fólk hafi um Selfoss. Hvort sem miðbær Sigtúns þróunarfélags rísi þarna eða ekki er ljóst að það þarf eitthvað að gera við þetta svæði. Það að hafa lítinn byggðakjarna þarna væri, að mínu mati, bara góður hlutur. Hann myndi veita skjól fyrir miðbæjargarðinn og bjóða einnig upp á húsnæði fyrir þjónustu - hver veit nema myndist þarna gönguverslunarkjarni ekki mjög ósvipuð Laugaveginum í Reykjavík? - og búa um leið til aðstöðu fyrir mannlíf. Það nennir enginn í garðinn þegar engin hátíð á sér stað þar, af því að það ER ekkert þar. Þetta risavaxna svæði stendur því autt meirihluta ársins. En ef svæðið verður byggt almennilega upp, þar með talið að fara loks í að gera við blessað grasið, planta trjám og runnum, setja upp bekki - samhliða ástæðu fyrir fólk að sækja svæðið heim - mun notkun þess vafalaust stóraukast. Eða kannski verða þetta stærstu mistök í sögu bæjarins. En við getum ekki vitað það án þess að láta á það reyna, og eitthvað er betra en ekki neitt.

V
Veigar Atli
8 years ago

NYJAN MIÐBÆ

S
Stefán örn Viðarsson
8 years ago

:)

Share Petition

Don't stop at signing, share the petition link with friends to multiply our impact

Copy link or share directly

Instagram
QR Code