Skip to main content

Við unnum! Bæjarráð hefur samþykkt að innleiða þjónustutryggingu á Húsavík til að brúa bilið fyrir foreldra ungra barna. Þessi sigur sýnir hvað við getum áorkað þegar við stöndum saman og krefjumst breytinga á skipulaginu.

June 3, 2009

Betri kjör barnafólks á Húsavík!

Betri kjör barnafólks á Húsavík!

🏆 Won — 93 supporters Verified

Final supporters

B
Björn H.
H
Helga V.
J
Jóhann G.
H
Hólmfríður S.
S
Someone
M
Margrét Ö.
E
Eyrún Ý.
E
Eiríkur F.
S
Sveinbjörn á.
H
Hilmar D.
+83 more
Started by Anonymous 17 years, 5 months ago
Staða foreldra ungra barna á Húsavík hefur farið hratt versnandi síðustu misserin. Nú er svo komið að inntaka í leikskólann Grænuvelli miðast við uþb. tveggja ára aldur. Fram að því, frá því að fæðingarorlofi lýkur (í sumum tilfellum þegar barn er 6 eða 9 mánaða gamalt), hafa foreldrar um fáa kosti að velja og sumir hafa hreinlega ekkert val. Nú í haust tóku til starfa dagmæður sem hafa pláss fyrir 10 börn, en annar það engan veginn eftirspurn. 6 börn eru á biðlista og margir foreldrar eru heima með börnin sín, án launa. Að sjálfsögðu kjósa margir foreldrar að vera lengur heima með börnin sín, enda er fátt betra fyrir börnin. Það er þó ekki sjálfgefið að hægt sé að reka heimili í lengri tíma með aðeins eina fyrirvinnu. Í Reykjavík og fleiri sveitarfélögum er foreldrum greidd svokölluð Þjónustutrygging þegar fæðingarorlofsgreiðslum lýkur og eins og segir á vef Reykjavíkurborgar: "Þjónustutrygging er mánaðarleg greiðsla sem foreldrar geta sótt um og ráðstafað að eigin ósk. Henni er ætlað að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til barnið byrjar á leikskóla. Foreldrar geta valið um nýta greiðslurnar eftir þörfum og aðstæðum. Þannig geta þeir kosið að vera sjálfir lengur heima með barni sínu eða greiða ættingja fyrir að gæta barnsins." Þarna er komið til móts við þá foreldra sem kjósa að hafa barn sitt lengur heima, en einnig getur uppæðin nýst til niðurgreiðslu dagforeldrakostnaðar (en hafa skal í huga að framboð dagforeldra í Reykjavík er mjög gott). Við teljum þetta brýnt mál sem beri að leysa og ekki sambærilegt öðrum málum sem mögulega er hægt að skera niður í á einhvern hátt. Þetta er grunnþjónusta sem verður að vera í boði í sveitarfélagi til þess að skapa viðunandi lífskjör fyrir barnafólk! Það er ósk okkar, fjölmargra foreldra og vonandi bæjarbúa allra, að komið verði til móts við þennan hóp. Við hvetjum íbúa á Húsavík, sem og aðra sem láta sig málið varða, til þess að setja nafn sitt á undirskriftarlistann okkar og þrýsta þar með á bæjaryfirvöld að gera breytingar til batnaðar. Með fyrirfram þökkum, foreldrar. -Vinsamlegast skiljið eftir nafn hér fyrir neðan (ef hakað er í efri reitinn, birtist ekkert nafn), einnig er hægt að skrifa td. staðsetningu (td. Húsavík) í "comments". Kærar þakkir.

Updates

March 30, 2009

Við höfum fengið fjölda skilaboða frá foreldrum sem eru í sömu erfiðu stöðu og lýst er í áskoruninni. Ég er núna að vinna í því að koma þessum kröfum á framfæri við bæjaryfirvöld. Skrifið bæjarfulltrúum tölvupóst í dag og minnið þá á að við bíðum enn eftir svörum um úrbætur.

March 30, 2009

We have reached a point where the local government cannot afford to ignore this issue any longer. Post this link to your Facebook page and send an email to your local representative to demand they address our childcare gap immediately.

6 Comments

A
Anna Barnes
17 years ago Featured

búin að vera heima í 4 mánuði launalaus. þetta gengur ekki upp fjárhagslega. vantar úrræði strax

J
Jón Atkinson
17 years ago Featured

Skammarlegt að foreldrar þurfi að velja á milli þess að eiga fyrir mat eða vera með börnunum sínum. Húsvíkingar eiga skilið sama rétt og fólk í Rvk.

S
Stefán Doyle
17 years ago Featured

Erum við ekki að reyna að fjölga íbúum? Þetta gerir ekkert nema fæla ungt fólk í burtu. Bætið úr þessu strax!

S
Sigrún Bennett
17 years ago Featured

Vantar fleiri dagmæður og þjónustutryggingu. Erum að reyna að byggja upp framtíð hérna en þetta stoppa okkur af.

H
Helga Medina
17 years ago Featured

Þetta er algjörlega óviðunandi staða fyrir ungt fólk á Húsavík. Við getum ekki ætlast til þess að fólk flytji hingað ef það á ekki í sig né á þegar fæðingarorlofi lýkur.

G
Gunnar Singh
17 years ago Featured

þetta er ekki flókið. viljum jafnrétti fyrir foreldra á landsbyggðinni! vantar að brúa þetta bil.