The Petition
Við undirrituð förum þess á leit við mennta- og menningarmálaráðherra að
hún beiti sér fyrir setningu laga um sjónvarpsútsendingar frá
stórviðburðum þar sem landslið Íslands koma við sögu, nánar tiltekið
Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum og Evrópumeistaramótum, þess efnis að
skylt sé að sýna viðburðina í opinni dagskrá sjónvarpsstöðva, sé
viðburðinum á annað borð sjónvarpað hérlendis. Þessi aðgerð er forsenda
þess að við sem þjóð getum sameinast um landslið okkar burtséð frá
búsetu og fjárhagslegri stöðu.