Powered by iPetitions - Start your online petition now

The Petition

Icelandair hafa undanfarið boðið upp á pakkaferðir til Íslands sem eru kallaðar miður geðslegum nöfnum. Þau sem við höfum séð og heyrt eru \"Have a dirty weekend\" \"Get Lucky\", \"One night stand\", \"Pester a beauty queen\" og \"Free dip, every trip\". Samspil myndmáls og fyrirsagna þessara auglýsinga gefur til kynna að hér sé verið að auglýsa aðgengilegar \"uppáferðir\" erlendra ferðamanna á Íslenskt kvenfólk.
T.d. er \"Dirty Weekend\" auglýsingin af þremur bikini klæddum ungum stelpum í Bláa Lóninu að klína á sig kísil -og með þeim er einn karlmaður. Það þarf hvorki víðtæka ensku kunnáttu, né próf í auglýsingasálfræði til að lesa á milli línanna.

Þó að smáa letur auglýsinganna innihaldi texta þar sem verið er að selja sérstök tilboð, breytir það því ekki að allar auglýsingar, ekki bara frá Icelandair heldur ALLAR prentauglýsingar, verða að ná athygli markhópa sinna með snjallri fyrirsögn og myndmáli sem spila saman. Þ.e.a.s fyrst og fremst verður að fanga athyglina til að fólk fái áhuga á að lesa restina. Í þessum Icelandair auglýsingum er augljóst að fólkið (markhópurinn) sem verið er að reyna að ná til eru gagnkynhneigðir karlmenn.

Þessar sölu og markaðssetningar aðferðir á landinu eru vægast sagt til háborinnar skammar fyrir Icelandair og ættu markaðsfulltrúar fyrirtækisins að sjá sóma sinn í því að afturkalla auglýsingarnar, og gefa þessa stefnu síðan algerlega upp á bátinn.

Ef þú telur sjálfa eða sjálfan þig, móður þína, systur, dóttur eða eiginkonu ekki falla í hóp þessara \"lauslátu\" kvenna sem Icelandair eru að \"selja ferðir upp á\" skrifaðu þá nafnið þitt á þennan lista og áframsendu á fólk sem þú telur að sé sammála.

Virðingarfyllst

Fjallkonan og afkomendur hennar

Sign petition

 
 

Fields marked with * are required

Display options