|
BANNIÐ BURT! |
|
|
Athugið! Skylda er að fylla út alla reiti samviskusamlega. Skv. lögfræðingi er undirskriftalistinn aðeins tekinn gildur ef fullt nafn, heimilisfang og netfang eru birt á honum. Undirskriftir sem hlíta ekki þessum reglum verður eytt úr listanum. Aðeins nafn þitt og athugasemd, skyldir þú hafa eitthvað að segja, munu birtast á vefnum
Búið er að laga listann. Nú er hægt að sjá hve margir hafa skrifað undir. Við undirrituð skorum hér með á Landbúnaðarráðuneytið að endurskoða lög um innflutning framandi dýra, s.s. snáka, eðlur, köngulær, chinchillur, merði, rottur ofl og rýmka lögin um innflutning þeirra. Þær ástæður sem Landbúnaðarráðuneytið setur t.d. fram um bann við silkikanínum (chinchilla), mörðum (ferrets) og rottum eiga mörg hver ekki við rök að styðjast. Aðalástæða Landbúnaðarráðuneytisins gegn innflutningi á chinchilla og mörðum er sú að "dýrin gætu sloppið út í íslenska náttúru og gert ómetanlegan usla í dýraríkinu". Bakgrunnur chinchillunnar er sá að chinchillur eru mjög viðkvæmar hitabreytingum og geta alls ekki þolað hita minni en 7°C eða hærri en 27°C (þær geta fengið hitaköst við hita allt niður í 20°C). Þær gætu því aldrei lifað úti í íslenskri náttúru (og jafnvel þótt þær gætu það myndi veturinn drepa þær). Nákvæmlega sama gildir um Sugar Glider, sem er annað vinsælt gæludýr úti, og er jafnvel viðkvæmara en chinchillan. Þegar litið er t.d. til Bretlands kemur það í ljós að ef að gælumerði yrði hent útí náttúruna myndi hann annaðhvort deyja úr kulda eða hungri. Mörg dæmi eru þekkt um að annaðhvort kettir eða flækingshundar hafi drepið þá og litið á þá sem bráð. Gælumerðir eru þriðja vinsælasta gæludýrið í Norður Ameríku sem ekki er geymt í búri, og eru algerlega háðir mannskepnunni um mat. Í ágúst 2004 fékk einn einstaklingur loksins leyfi fyrir innflutning á rottum, með þeirri skýringu að þær voru "þegar til hér á landi", en síðan þá hafa allir þeir einstaklingar sem reynt hafa að sækja um leyfi fengið neitun. Þetta hefur orðið til þess að rotturæktun á Íslandi hefur verið hætt vegna hættu á of miklum skyldleika innan stofnsins. Aðalástæða Landbúnaðarráðuneytisins gegn innflutningi á skriðdýrum er sú að í meltingarvegi þeirra leynist salmonellubakterían, en þessi dýr nota hana til að melta fæðuna, eins og manneskjan notar E.coli. Reynslan um allan heim er sú að svo lengi sem skriðdýraeigendur viti af þessu og gæti ýtrustu varkárni og hreinlætis við meðferð þessara dýra er ekkert að óttast.. Nú er árið 2006, og þetta bann á ekki lengur að vera við lýði! |
|
| www.bannidburt.com | |